Félagsliðabrú

Flokkur: Lengra nám

Um er að ræða fyrstu 4 annirnar af 6 anna námi, samtals 76 einingar.  Breytingar hafa orðið á námi félagsliða frá og með haustinu 2020 skv. ákvörðun Menntamálaráðuneytisins.  Að loknu námi hjá SÍMEY geta nemendur lokið félagliðabraut hjá framhaldsskóla á einu ári og fengið starfsréttindi félagsliða.

Innihald námsins eru félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði fötlunar- og öldrunarþjónustu. 

Forkröfur í námið eru að nemendur hafi náð 22ja ára aldri, hafi 3ja ára starfsreynslu í umönnun og hafi lokið 230 kennslustunda starfstengdum námskeiðum.

Námið er kennt sem blandað lotu- og fjarnám. 

Fyrirkomulag náms: námið hefst 19. ágúst klukkan 17:00. Námið er byggt þannig að hver áfangi er kenndur í  sex vikur í senn. Allir fyrirlestar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið. Námsmenn hafa aðgengi að kennara fjóra tíma í viku annaðhvort í gegnum netið eða hér í SÍMEY. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennar þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðu í SÍMEY og hafa aðgengi ráðgjöfum og verkefnastjórum í SÍMEY. Fyrstu dagana verður námstækni kennd og fyrirkomulagið nánar útskýrt.  

Fög kennd haustönn 2021

Námstækni 19 og 20 ágúst 

Næringarfræði 23. ágúst 

Stærðfræði 23. ágúst 

Fatlanir 4. október 

Hegðun og atferlismótun  8. október 

 

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.

Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist innan 14 daga eftir að umsókn var send inn, verða námsgjöld innheimt að fullu.

Smellið hér til að afskrá ykkur úr námi.

 

Verð: 61.000 kr (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs)

 

 Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum !