Fagenska fyrir heilbrigðisstarfsfólk - vefnámskeið

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).  

Ætlað móttöku-, lækna-, og heilbrigðisriturum.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á starfstengda ensku, þ.e. þann orðaforða sem tengist heilbrigðismálum og öðru sem tengist starfinu. Áhersla er lögð á þjálfun talmáls, með samtölum og vinnu í litlum hópum. Farið er í grunnatriði málfræði og stafsetningar. Kennslustundirnar eru skemmtilegar og líflegar þar sem markmiðið er að gera fólk óhrætt og fært um að tjá sig við þjónustuþega.

Markmið:  

  • Að þátttakendur verði öruggari að tjá sig á ensku. 
  • Að þátttakendur byggi upp orðaforða sem nýtist þeim í starfi.
  • Að þátttakendur skilji helstu hugtök á ensku er tengjast starfssviði þeirra.
  • Að þátttakendur geti svarað fyrirspurnum í starfi á ensku, bæði munnlega og skriflega. 

Staður og tími: Kennt fimmtudagana 9., 16., 23., og 30. nóvember frá kl. 14-16, á ZOOM

Leiðbeinandi: Rósa María Sigurðardóttir, kennari.

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð