Persónumiðuð umönnun, stuðningur og þjónusta með Eden Alternative hugmyndafræðina að leiðarljósi

Flokkur: námskeið

Námskeið ætlað stjórnendum í umönnun og þjónustu einstaklinga á öllum aldri sem þarfnast stuðnings við athafnir daglegs lífs s.s á hjúkrunarheimili, heimaþjónustu, heimahjúkrun, búsetukjarna og dagþjálfun.

Markmið námskeiðsins er að:

  • Gefa innsýn í upphaf og þróun Eden hugmyndafræðinnar
  • Gefa innsýn í hvernig unnið er með hugmyndafræðina á þremur sviðum starfseminnar: Stjórnun – Umhverfi – Einstaklingur.
  • Kynna “Eden verkfæri” sem þróuð hafa verið til að tryggja að unnið sé persónumiðað við umönnun, stuðning og þjónustu einstaklinga.

 
Fjallað verður um eftirfarandi þætti Eden Alternative:

  •  Sögulegt upphaf frá 1994, alþjóðleg þróun  og þróunin á Íslandi
  •  Markmið, sýn og gildi Eden Alternative
  •  Hvernig stjórnun, skipulag, umhverfi, viðhorf og aðferðir gefa rými til að vinna gegn    einmanaleika, vanmætti og leiða.  
  •  Grunnrelgurnar 10 og Lærdómshringurinn
  • ”Eden verkfæri” s.s. Vellíðunarlyklana 7 notkun þeirra og tilgangur  í samspili við lífssögu einstaklingsins.

Leiðbeinendur: Rannveig Guðnadóttir Hjúkrunarfræðingur MSc verkefnastjóri Eden Íslandi, Ingunn Eir Eyjólfsdóttir félagsráðgjafi og Aníta Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur

Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja hjá ríki og sveitarfélögum athugið! 
Starfsmenntasjóðirnir Sveitamennt og Ríkismennt greiða námskeiðsgjald vegna þátttöku almennra starfsmanna sveitarfélaga og ríkisins. Þetta á einnig við stofnanir ríkis og sveitarfélaga sem eru aðilar að Sveitamennt og Ríkismennt. 

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning