Copilot - Byrjendur

Flokkur: námskeið

Lærðu grunnhugtök og daglega notkun Microsoft 365 Copilot í helstu forritum sem þú notar í vinnunni. Námskeiðið er hannað fyrir byrjendur sem vilja skilja hvernig Copilot getur sparað tíma og aukið framleiðni.

Helstu áherslur:

Copilot Chat:

  • Nýta sér gervigreindina í vinni
  • Munurinn á Work og Web

Copilot í Outlook:

  • Búa til og svara tölvupóstum með tillögum frá Copilot
  • Samantekt á löngum póstþráðum
  • Skipulag dagbókar og fundarboða

Copilot í Teams:

  • Samantekt funda og spjalla
  • Búa til talpunkta og aðgerðalista
  • Nota Copilot til að undirbúa fundi

Copilot í Word:

  • Búa til drög að skjölum
  • Endurskrifa texta og bæta stíl
  • Draga saman efni úr gögnum

Copilot í PowerPoint:

  • Búa til glærur út frá texta eða hugmyndum
  • Breyta útliti og stíl glærusýninga
  • Samantekt fyrir kynningar

Markmið:
Að þátttakendur geti nýtt Copilot í daglegum verkefnum til að spara tíma og bæta gæði vinnunnar.

Leiðbeinandi: Hermann Jónsson

Hvar og hvenær: 4. mars klukkan 17:00-20:00

vefnámskeið

Verð: 17.900 kr

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Copilot - byrjendur 04. mar. miðvikudagur 17:00-20:00 vefnámskeið 17.900 kr. Skráning