Canva: Flott hönnun á einfaldan hátt

Flokkur: námskeið

Það þarf ekki að vera flókið að setja upp flott kynningarefni, skýrslur, boðskort eða auglýsingar. Canva er stórskemmtilegt og notendavænt forrit sem gerir hverjum sem er kleift að hanna útlit sem virkar – án þess að vera grafískur hönnuður.

Á þessu námskeiði lærum við á grunnvirkni forritsins og hvernig best er að nýta tilbúin sniðmát (templates) til að spara tíma. Við skoðum einnig hvernig nýjustu gervigreindartólin inni í Canva geta hjálpað okkur að lagfæra myndir og texta á augabragði.

Á námskeiðinu lærir þú:

  • Grunnatriðin: Að rata um forritið og velja réttar stærðir fyrir prent og vef.
  • Sniðmát: Hvernig þú notar tilbúin útlit fyrir samfélagsmiðla, kynningar og skjöl en gerir þau að þínum eigin.
  • Myndvinnsla og vinnsla myndskeiða: Einföld trix til að laga myndir, fjarlægja bakgrunna og nota „element“ til skrauts.
  • Gervigreind í Canva: Hvernig tölvan getur aðstoðað þig við að skrifa texta eða búa til myndefni.

Fyrir hverja? Alla sem vilja geta sett upp snyrtilegt og flott efni í vinnu eða einkalífi, hratt og örugglega.

Leiðbeinendur:

Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason

Hvar og hvenær: 18: mars klukkan 17:00-19:00

vefnámskeið

Verð: 19.900 kr

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Canva: Flott hönnun á einfaldan hátt 18. mar. miðvikudagur 17:00-19:00 vefnámskeið 19.900 kr. Skráning