Boðið í Brunch

Flokkur: Nám fyrir fólk með fötlun

Það er gaman að bjóða í brunch og veitingarnar geta verið fjölbreyttar. Aðal-atriðið er góður félagsskapur og að njóta. 

Á námskeiðinu velja þátttakendur í samstarfi við kennara rétti til að bjóða upp á. 

Hér eru nokkrar hugmyndir að brunchréttum:

  • Amerískar pönnukökur
  • Ávaxtaspjót
  • Brauðsnittur
  • Franskt eggjabrauð
  • Grísk jógúrt með heimagerðu múslí
  • Grænmetisbaka
  • Ljúffengur boozt
  • Morgunverðarmúffur

Þátttakendur velja síðan í samstarfi við kennara það sem þeim finnst mest spennandi eða koma með aðrar hugmyndir.

Fyrirkomulag námskeiðs, svo sem kennsludagar og tímasetningar verða ákveðnar í samráði kennara og þátttakenda, en reiknað er með að námskeiðið hefjist eftir páska. 

Verð: 15.000

Leiðbeinandi: Kristín Linda Helgadóttir

Fjöldi skipta: 4 skipti, 2 klst. í senn.

 

Við bendum umsækjendum á að athuga möguleika á styrkveitingum hjá stéttarfélagi sínu eða hjá Akureyrarbæ, sjá upplýsingar hér.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Boðið í Brunch 18. mar. - 15. apr. Miðvikudagar 16-18 SÍMEY, Þórsstíg 4 15.000 kr. Skráning