Áhugahvetjandi samtal

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Áhugahvetjandi samtal (e. Motivational Interviewing) er notað bæði með fullorðnum og unglingum sem gætu verið í þörf fyrir breytingar á lífsstíl eða hegðun. Sumir hafa hugsanlega ekki komið auga á þörf fyrir breytingar eða eru alfarið á móti þeim, á meðan aðrir hafa íhugað breytingar en eru á báðum áttum.
Aðferðin sem hér er um að ræða miðar að því að virkja vilja skjólstæðings til jákvæðra breytinga á lífsstíl og hegðun. Starfsmenn efla færni sína í að mæta skjólstæðingi þar sem hann er staddur, laða fram og ýta undir hugsanir og tillögur hans sjálfs um jákvæðar breytingar. Aðferðin byggist á skilningi starfsmannsins á ferli samtalsins og vilja til samvinnu. Fagfólk sem tileinkar sér þessa aðferð eflir færni sína í að aðstoða fólk í að breyta hegðun. Mikilvægt einkenni áhugahvetjandi samtals er einnig að forðast ákveðnar leiðir í samtalinu, eins og siðapredikanir, sem eru til þess fallnar að ýta undir mótþróa og draga úr vilja til breytinga. Borin er virðing fyrir sjálfstæði skjólstæðingsins, rétti hans og getu til að taka eigin ákvarðanir innan viðeigandimarka hverju sinni. Reynsla þeirra sem hafa lært og notað áhugahvetjandi samtal er að vinnan verður skemmtilegri og árangursríkari, sem getur dregið úr líkum á kulnun í starfi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að umrædd nálgun ber árangur bæði í bráðaþjónustu og meðferðarvinnu.

Á námskeiðinu er farið yfir fræðilegan bakgrunn, grunnhugmyndir og áhersla er lögð á æfingar. Fjallað er um kóðun á samtalsbútum og greiningarkerfið MITI kynnt, en það kerfi tryggir gæði í framkvæmdinni og að aðferðin sé notuð rétt. Þátttakendur skila inn einum 20 mín. löngum samtalsbút (í starfrænu formi) til greiningar í kjölfar námskeiðsins og fá símaendurgjöf, ásamt matsblaði.

Staðnámskeið, dagar og tími:  11.-12. nóv. frá kl. 9:00-16:00.  
Haldið á Akureyri og svo 20-30 mín. símtal til allra þátttakenda sem skila inn upptöku á umsömdum tíma.

Fyrirkomulag: Tveir samliggjandi dagar (9-16) & símaendurgjöf fyrir alla þátttakendur.

Leiðbeinendur: Héðinn Svarfdal Björnsson, MA & dr. Helga Sif Friðjónsdóttir.

Markhópur: Ætlað starfsfólki sem vinnur við umönnun og meðferð.

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning