Að kveikja á eigin krafti - efling sjálfsöryggis og sjálfsaga

Flokkur: námskeið

Námskeiðið byggir á grunni lífsþjálfunar með það að markmiði að þátttakendur öðlist fleiri hagnýt verkfæri til að efla eigið sjálfsöryggi og sjálfsaga, hæfni sem byggist upp innan frá með meðvituðum hætti.

Ávinningur:

  • Að auka meðvitund um áhrif sjálfsöryggis og sjálfsaga á líðan
  • Að takast á við líkamlegar og andlegar áskoranir með sjálfsöryggi
  • Að virkja innri styrk með sjálfsöryggi
  • Að byggja upp seiglu og ró með sjálfsöryggi

Leiðbeinandi:Huld Aðalbjarnardóttir, lífsþjálfi

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning