360 gráðu heilsa

Flokkur: vefnámskeid

Námskeiðið samanstendur af fjórum fyrirlestrum þar sem Rafn Hrafnsson heilsuráðgjafi færir þátttakendum heilsteypta formúlu að heilsusamlegra lífi eða það sem hann kallar 360° Heilsa. Rafn fer yfiri þá lífsstílsþætti sem hann telur vera undirstöður góðrar heilsu og fræða um hvernig hægt er að hámarka hvern þátt til að uppskera bætta orku, hreysti, vellíðan og alhliða andlega og líkamlega heilsu.

Tími:  Námskeiðið er 4 skipti þar sem einn þáttur er tekinn fyrir hverju sinni dagana:  14.jan, 21, jan, 28.jan og 3.feb. 16:30-18:00. 

Mataræði

Eitt stærsta vandamál sem við stöndum frammi fyrir í nútíma vestrænu samfélagi er að við erum að innbyrgða of mikla orku en á sama tíma of litla næringu. Þetta ásamt fleiri þáttum hefur ýtt undir þá alvarlegu þróun lífsstílssjúkdóma sem er orðin ein okkar helsta lýðheilsuógn í dag. Í fyrirlestrinum fer ég yfir algengar mýtur í mataræði, hvernig mataræðið okkar hefur breyst, hvaða matvæli eru að ræna frá okkur heilsunni og hvernig við getum borðað betur fyrir bætta heilsu.

Svefn

Svefninn er allra mikilvægastur þegar kemur að góðri heilsu. Það er alveg sama hvað þú borðar hollt eða hreyfir þig vel, ef svefninn er í ólagi þá er heilsan í ólagi, svo einfalt er það. En svefn er ekki bara svefn heldur skipta gæðin höfuðmáli. Svefn er að mínu mati bæði misskilinn og vanmetinn. Í þessum fyrirlestri ætla ég að fara yfir af hverju svefninn skiptir svona miklu máli, hver eru einkenni gæðalítils svefns, af hverju skipta gæðin meira máli en lengdin og ýmis ráð og reglur til að tryggja hinn fullkomna gæðasvefn fyrir betri orku, heilsu og vellíðan.

Hreyfing

Eins og flestir vita er hreyfing lykilþáttur góðrar heilsu. En er bara nóg að hreyfa sig eða skiptir máli hvernig? Hvaða áhrif hefur líkamsstaðan okkar á heilsuna? Hvað getum við gert til að hreyfa okkur betur? Hvenrig getum við hámarkað afköst æfinganna og gert líkamann að skilvirkari fitubrennsluvél? Hvernig fyrirbyggjum við stoðkerfisvandamál? Ég fer yfir þessi atriði og ýmsum fleiri góðum ráðum í tengslum við hreyfingu og líkamsrækt.

Jafnvægi

Streitustjórnun, félagsleg tengsl, öndun, hugleiðsla, markmið og draumar. Þetta eru hlutirnir sem líma hina grunnþættina saman og hjálpa við að móta heilbrigðan lífsstíl. Þegar við erum í heilbrigðu jafnvægi verður lífið bæði innihaldsríkara, auðveldara og ánægjulegra.

Leiðbeinandi: Rafn Hrafnsson, heilsuráðgjafi.

 

Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Kjölur og Sameyki greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn og starfsmenntasjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsmenn í Einingu Iðju. 

Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning