Flokkur: Velferðarsvið Akureyrarbæjar
Starfar þú í þjónustukjarna og vilt öðlast meira öryggi í að styðja við heilsu og næringu þinna skjólstæðinga?
Þetta hagnýta námskeið er hannað sérstaklega til að veita starfsfólki dýrmæta þekkingu og einföld verkfæri til að hvetja til heilbrigðara mataræðis og lífsstíls í daglegu starfi.
Farið verður yfir grundvöll næringar, hvernig megi mæta ólíkum þörfum hvers og eins og hvernig starfsfólk getur aðstoðað skjólstæðinga sem glíma við lífsstílssjúkdóma.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Heilsusamlegt líferni: Grunnurinn að hlutverki næringar og hvernig við hvetjum skjólstæðinga til góðra vanabreytinga.
- Mataræði í hversdeginum: Mikilvægi reglulegra máltíða, næringarríkan mat, vökvun og skammtastærðir.
- Lífsstílssjúkdóma: Sykursýki (tegund 2), blóðsykursstjórnun og hvernig matur hefur áhrif á líkamann.
- Matarfíkn og áskoranir: Að skilja muninn á tilfinningalegri borðun og líkamlegu svangi, og hvernig megi skapa heilbrigðara umhverfi í kringum mat.
Námskeiðið styrkir starfsfólk í að lesa í ólíkar þarfir skjólstæðinga sinna og styðja þá við að bæta lífsgæði sín með næringu.
Leiðbeinandi: Marína Sigurgeirsdóttir
Tímasetning: 29. september kl 13:00-15:00
Staðsetning: SIMEY, Þórsstíg 4