Matarboð og gervigreind: Snjallari eldamennska fyrir alla

Flokkur: námskeið

Á þessu námskeiði kynnumst við gervigreind sem okkar nýja uppáhalds hjálparkokk. Gervigreindin kemur ekki í stað handverksins eða bragðskynsins, heldur virkar hún sem ótæmandi uppspretta hugmynda.

Hvernig reiðir þú fram veislu þegar gestirnir hafa ólíkar þarfir? Á matseðlinum þarf mögulega að taka tillit til:

  • Vegan fæðis
  • Ketó og lágkolvetna áhersla
  • Óþols (glúten, mjólkurvörur o.fl.)
  • Næringargildis og hitaeiningafjölda
  • Við sýnum þér hvernig þú leysir svona aðstæður á einfaldan og skipulagðan hátt með aðstoðtækninnar.

Það sem þú lærir:

  • Grunnmáltíðir með tilbrigðum: Aðferðir til að búa til öfluga grunnumgjörð sem auðvelt er að aðlaga að ólíkum matarþörfum án þess að elda fimm mismunandi rétti.
  • Skilningur á mataræði: Innsýn í helstu áherslur mismunandi fæðisvals.
  • Snjallari matargerð: Lærðu að nota réttu skipanirnar til að fá gervigreindina til að hanna matseðla, innkaupalista og uppskriftir sem virka.
  • Verkleg þjálfun: Við nýtum tæknina og eldhúsið samhliða til að raungera hugmyndirnar.

Fyrir hverja?

  • Námskeiðið er fyrir allt áhugafólk um mat og heilsu, heimiliskokka sem vilja nýja innblástur og þátttakendur í heilsueflingu. Engin forþekking á gervigreind er nauðsynleg – við byrjum á byrjuninni.

Leiðbeinandi:Ásta Búadóttir, kennari og matreiðslumeistari

Verð: 23.900.-

Hvar: SÍMEY, Þórsstíg 4. 

Hvenær: 5. mars kl 17:00-20:00 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Matarboð og gervigreind: Snjallari eldamennska fyrir alla 05. mar. fimmtudagur 17:00-20:00 SÍMEY, Þórsstíg 4. 23.900 kr. Skráning