Virðing í margbreytilegu samfélagi

Flokkur: HSN

Fyrir fólk sem vill efla virðingu, samskipti og vinna gegn fordómum í starfi og daglegu lífi. Við vinnum og lifum í samfélagi þar sem fólk kemur úr ólíkum áttum með mismunandi uppruna, tungumál, húðlit, fötlun, menningu, trú, kynvitund og reynsluheim. Eitt sameiginlegt þarf að vera til staðar: virðing í samskiptum.

Lausnahringurinn eru sjö lausnir sem hjálpa okkur að skilja okkur sjálf.

Þú lærir að:

  • Stjórna þér, þegar þú upplifir óöryggi, gagnrýni eða áskorun að hlusta í stað þess að verja sjálfan þig eða “útskýra”
  • Stoppa, að greina og grípa inn í orðræðu sem meiðir, útilokar á mismunun og ráðandi afstöðu
  • Skiptast á, að skapa jafnvægi í samtali svo raddir þeirra sem oft gleymast heyrist
  • Vera með, að þjálfa næmi fyrir því hverjir eru ósýnilegir í hópnum og bjóða þátttöku af einlægni
  • Knúsa, að skilja að líkamleg eða tilfinningaleg nálægð er menningarlega mótuð og ekki ætlast til eins viðbragðs frá öllum
  • Hjálpa, að stíga frá hjálpsemi sem stjórnar yfir í að valdefla og gefa rými
  • Fyrirgefa, að horfast í augu við eigin vana, viðurkenna og vaxa af reynslu.

Leiðbeinandi: Arnrún María Magnúsdóttir kennari í forvörnum gegn ofbeldi á börnum og skapari Lausnahringsins.

Hvar og hvenær: 30. október kl. 17:00-19:00

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning