Virðing í margbreytilegu samfélagi

Flokkur: námskeið

Fyrir fólk sem vill efla virðingu, samskipti og vinna gegn fordómum í starfi og daglegu lífi. Við vinnum og lifum í samfélagi þar sem fólk kemur úr ólíkum áttum með mismunandi uppruna, tungumál, húðlit, fötlun, menningu, trú, kynvitund og reynsluheim. Eitt sameiginlegt þarf að vera til staðar: virðing í samskiptum.

Lausnahringurinn eru sjö lausnir sem hjálpa okkur að skilja okkur sjálf.

Þú lærir að:

  • Stjórna þér, þegar þú upplifir óöryggi, gagnrýni eða áskorun að hlusta í stað þess að verja sjálfan þig eða "útskýra"
  • Stoppa, að greina og grípa inn í orðræðu sem meiðir, útilokar á mismunun og ráðandi afstöðu
  • Skiptast á, að skapa jafnvægi í samtali svo raddir þeirra sem oft gleymast heyrist
  • Vera með, að þjálfa næmi fyrir því hverjir eru ósýnilegir í hópnum og bjóða þátttöku af einlægni
  • Knúsa, að skilja að líkamleg eða tilfinningaleg nálægð er menningarlega mótuð og ekki ætlast til eins viðbragðs frá öllum
  • Hjálpa, að stíga frá hjálpsemi sem stjórnar yfir í að valdefla og gefa rými
  • Fyrirgefa, að horfast í augu við eigin vana, viðurkenna og vaxa af reynslu.

Leiðbeinandi:Arnrún María Magnúsdóttir kennari í forvörnum gegn ofbeldi á börnum og skapari Lausanhringsins.

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning