Uppleið - Hugræn Atferlismeðferð

Flokkur: HSN

Nám sem byggt er á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar er ætlað þeim sem eru 18 ára og eldri og hafa ekki lokið námi í framhaldsskóla. Námið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra.

Námið er samstarfverkefni SÍMEY og Farskólans, miðstöðvar símenntunnar á Norðurlandi vestra

Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir.

Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur

Hvar og hvenær: Námið verður kennt á netinu í gegnum ZOOM. Kennt verður tvö kvöld í viku í 12 skipti, þriðjudaga og fimmtudaga 18:00-20:00, hefst 2.október. 18:00-20:00

Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning