Að standa með sjálfum sér - Námskeið fyrir trúnaðarmenn hjá Einingu Iðju.

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

ATH! Námskeiðið er aðeins ætlað trúnaðarmönnum hjá Einingu Iðju.

Samkeppnin um athygli hefur sjaldan verið jafn hörð og nú. Hvaða leiðir eru færar til þess að koma þér og þínu félagi að í nútímasamfélagi? Á námskeiðinu verður farið yfir nokkur mikilvægt atriði sem geta komið að gagni við að kynna þig og félagið þitt. Hvernig náið þið eyrum yfirmanna? Hvernig undirbýr maður sig fyrir aðalfundinn og hvernig á að svara fjölmiðlafólkinu? Hvað er fréttnæmt hjá félaginu? Skiptir sýnileiki máli? Ávinningurinn er aukið sjálfstraust og aukin virðing fyrir starfi trúnaðarmanna. Námskeiðið stendur yfir í tvö kvöld, 2x3 tímar. Gagnlegt námskeið fyrir alla trúnaðarmenn.

Námskeiðið er alls 6 tímar og er kennt í tveimur hlutum. 

Fyrri dagur:

  • Hver er styrkur ykkar sem trúnaðarmenn? Hvers vegna voruð þið valin til trúnaðarstarfa? Hvaða eiginleika þarf trúnaðarmaður að hafa?
  • Hvernig undirbúið þið samtalið við yfirmennina?
  • Tjáskipti án orða?
  • Hver er ég og hvernig næ ég árangri? Æfingar fyrir framan hópinn.
  • Að tala í pontu – æfingar.
  • Sjálfstraustið. Er hægt að byggja það upp?
  • Hvaða máli skiptir sýnileikinn?

 Seinni dagur:

  • Færar leiðir til þess að nálgast fjölmiðla.
  • Hvers konar efni sækjast fjölmiðlar eftir?
  • Gerð fjölmiðlaáæltunar
  • Hvað er frétt og hvaða efni liggur á skrifborðinu?
  • Undirbúningur viðtals
  • Fjölmiðla-krísustjórnun, hvernig er hægt að bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis og fjölmiðlar sækja á.
  • Æfingar fyrir framan hópinn og árangur metinn.

Leiðbeinandi: Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð