Tölvustýrður fræsari - FABLAB

Flokkur: námskeið

Stutt námskeið í notkun á tölvustýrðum fræsara. Farið verður yfir forritið VCarve og hvernig á að teikna upp og yfirfæra í tölvustýrðan fræsara. Farið verður yfir notkun á stórum fræsara og öryggismál í kringum hann. Nemendur fá að búa sér til platta/skilti eftir eigin hönnun.  

Þeir sem ljúka námskeiðinu hafa greiðari aðgang að CNC fræsinum í Fab Lab Akureyri í framtíðinni.  

Leiðbeinandi: Jón Þór Sigurðsson forstöðumaður Fab Lab Akureyri

Lengd: 9 tíma námskeið, þrjú skipti 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.

Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning