Þroskaverkefni ellinnar

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Efnistök eru eftirfarandi: 

  • Öldrun skilgreind og gerð grein fyrir helstu kenningum um hana (þ.e. hvers vegna við eldumst). 

  • Farið yfir helstu öldrunarbreytingar miðað við að heilsa haldist góð, sérstök áhersla á eðlilegar breytingar á vitrænni getu og starfsemi heilans. 

  • Gerð grein fyrir helstu sál-félagslegu kenningum um öldrun, þ.á.m. kenningum um þroskastig ævinnar. 

  • „Farsæl öldrun“ – hvað einkennir hana? Nokkrar hugmyndir ræddar. 

  • Tilfinningalegar þarfir. 

  • Samskipti og breytingar á þeim yfir tíma (yngstu/elstu í hópnum). 

  • Nálægð dauðans. 

  • Yfirlit yfir íslenska öldrunarþjónustu

Námskeiðið er góður undanfari námskeiðsins Mannréttindi aldraðra.  

Leiðbeinandi: Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun.

Hvar og hvenær:  11 apríl kl. 14-16, vefnámskeið. 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning