Súrdeigsbakstur á Böggvisstöðum - nýtt námskeið

Flokkur: námskeið

Bakstur úr súrdeigi þykir mörgum spennandi en að sama skapi flókinn.

Námskeiðið er hugsað fyrir byrjendur sem vilja læra að baka súrdeigsbrauð heima hjá sér á einfaldan hátt.

Það verður farið yfir allt efnið frá A til Ö og munu þátttakendur verða margs vísari um súrdeigsbaksturinn og allt sem honum fylgir.

Innifalið er allt hráefni. Þátttakendur fá uppskriftamöppu til eignar.

Allir taka bakað brauð með sér heim og súrdeigsmóður.

Leiðbeinandi: Mathias Spoerry, súrdeigsbrauðsbakari hjá Böggvisbrauði á Dalvík

Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Athugið að námskeiðið er öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

 

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð