Nám í Skóla- og frístundasmiðju, ásamt íslenskukennslu, er ætlað einstaklingum með íslensku sem annað mál og vilja kynnast störfum og hugmyndafræði í starfsemi grunnskóla og frístundastarfs. Megin áhersla Skóla- og frístundasmiðju er að nemar fái innsýn í helstu verkferla sem snúa að starfi í grunnskóla- og frístundastarfi. Þau taka virkan þátt í fjölbreyttum vinnustofum sem leggja áherslu á virkni og skal sú reynsla nýtast við að bæta við sig frekari þekkingu, leikni og hæfni. Tilgangur íslenskuhluta námsins er að auðvelda fólki af erlendum uppruna aðlögun að íslenskum vinnumarkaði.
Námskeiðið mun gera þér kleift að:
Smiðjan hefst 14. september og lýkur 30.nóvember. Smiðjan verður kennd frá klukkan 11:00 - 14:00 á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Námið er 118 klukkustundir með leiðbeinenda og um 20 klukkustunda vinnustaðaþjálfun á viðeigandi menntastofnun.
Námskeiðið samanstendur af þremur hlutum:
Verð: 52.000kr
(með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs)
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!
Fyrir frekari upplýsingar um smiðjuna má hafa samband við umsjónarmenn námsins, Heiðu (heida@simey.is) eða Helenu (helena@simey.is).