Skrautskrift Akureyri
Í þessu fjögurra vikna grunnnámskeiði færð þú innsýn í listina að nútímalegri skrautritun í hlýlegu og hvetjandi andrúmslofti. Námskeiðið er hannað sérstaklega fyrir byrjendur — engin fyrri reynsla er nauðsynleg.
Vaiva leiðbeinir þér í gegnum grunnatriði skrautritunar, frá vali á verkfærum og efniviði til þess að mynda fallega bókstafi með jöfnum hrynjanda. Smám saman öðlast þú öryggi í ritun þinni og lærir hvernig hægt er að beita þessari list á fjölbreyttan hátt — hvort sem það er á spjöld, kort, umbúðir eða aðra persónulega hluti.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á skapandi handverki og vilja gefa sér tíma til að kynnast þessari fallegu list.
Áhöld innifalin í verði
Kennari: Vaiva Straukaite eigandi studio Vast
Verð: 37.900
Tímasetning: Fimmtudagur 17 og 24 september og 1 og 8 október 18:15-20:00
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Grunnnámskeið í skrautskrift | 17. sep. - 08. okt. | Fimmtudagur | 18:15-20:00 | SIMEY Þórsstíg 4 | 37.900 kr. | Skráning |