Sérhæfð endurlífgun ILS

Flokkur: HSN

 

Markhópur: Heilbrigðisstarfsfólk sem þarf starfs síns vegna að taka þátt í endurlífgun t.d. læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar og sjúkraflutningamenn.

Markmið: Að tryggja að heilbrigðisstarfsmenn séu færir um greina fyrstu einkenni hjartabilunar, kunni helstu aðgerðir sem beita má til að koma í veg fyrir hjartastopp. Markmiðið felst einnig í því að stuðla að því að þeir búi yfir nægri þekkingu og hæfni til að meðhöndla sjúkling í hjartastoppi áður en að sérhæft endurlífgunarteymi kemur auk þess sem þeir eiga að geta tekið þátt í vinnu endurlífgunarteyma.

Kennsluaðferðir: Fræðilegur hluti í formi vefnáms og klínískur hluti í formi sýnikennslu, verklegra æfinga og tilfellakennslu.

Námskeið er í tveim hlutum, fræðilegum og klínískum. Fyrri hlutinn “sá fræðilegi” er í formi vefnáms inná vefsíðu evrópska endurlífgunarráðsins (CoSy) sem lýkur með forprófi og skilyrði fyrir mætingu á seinni hlutann þann „klíníska“.

Lengd: 8 klukkustundir.

Endurmenntun: Skírteini gildir í þrjú ár hægt er að halda við líftíma skírteinisins með því að sækja endurmenntunarnámskeið. Æskilegt er að hafa stutta upprifjun á vegum vinnustaðarins árlega (2 klukkustundir) þar sem megin áherslan er á verklegar æfingar og samhæfingu aðgerða hjá endurlífgunarteymi.

Námsmat: Forpróf í lok vefnáms. Auk símat í gegnum allt klíníska námskeiðið.

Staðsetning: Akureyri 14. apríl kl 8-16

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Sérhæfð endurlífgun ILS 14. apr. þriðjudagur 8:00-16:00 Akureyri Skráning