Sérfæði

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Efni: Fæði með breyttri áferð og fljótandi fæði og fæði fyrir íbúa hjúkrunarheimila Atriði sem skipta máli varðandi næringu aldraðra sjúklinga  

  • Fæði við hæfi: Almennt, kunnuglegt fæði. 

  • Hæfileg áferð miðað við þarfir einstaklings (tennur/kynging): Mjúkt fæði (M1), fæði með breyttri áferð (M2) eða fínt mauk (M3). M3 er fínasta maukfæðið með áferð svipaða og barnamatur 

  • Hæfileg skammtastærð. Oft er lítill skammtur hæfilegur og viðbótar spónamatur vel þeginn. 

  • Góður tími sé gefinn til að borða. 

  • Hjálp á matmálstímum: Skera fæðu í hæfilega stóra bita, stappa mat, gefa auka sósu eða smjör, opna ílát o.fl.  

  • Útskýra hvað er á disknum fyrir þeim sem eru sjóndaprir og gæta vel að orðavali við þær lýsingar. 

  • Fylgjast vel með því hvernig viðkomandi gengur að nærast og hvort skammtar séu jafnvel of stórir. Of stórir skammtar geta dregið úr matarlyst.  

Fljótandi fæði er:  

  • Notað við sjúkdómum í munni, kjálkum og koki, ásamt þrengslum í vélinda og efri hluta meltingarvegs. 

  • Ætlað sjúklingum sem eiga við mikla tyggingar-og kyngingarerfiðleika að stríða.  

  • Ætlað sjúklingum sem ekki haf lyst á almennri, fastri fæðu en þurfa auðmeltanlega næringu og vökva. 

  • Einnig notað fyrir og eftir skurðaðgerðir, við alvarleg brunasár og fyrir sjúklinga sem ekki geta borðað fasta fæðu af öðrum ástæðum. Sumir sjúklingar sem undirgangast stífa krabbameinsmeðferð í munni, koki og vélinda þola aðeins fljótandi fæði og sumir þola aðeins kalt fljótandi fæði (TONES). 

  • Ætlað sjúklingum sem eru að koma úr hálskirtlatöku og eiga að nærast eingöngu á köldum súpum fyrst í stað. •Eitt og sér ekki að uppfylla næringarlegar þarfir sjúklinga og því er það einungis notað í skamman tíma. Auðvelt er að nota fljótandi fæði samhliða sondufæði. Tært fljótandi fæði byggir á síaðri ávaxtasúpu, kjötseyði og eplasafa 

Leiðbeinandi: Marína Sigurgeirsdóttir, kennari á matvælabraut VMA

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð