Námskeiðið fjallar um þann fjársjóð sem leynist í fræi trjá og blómplanta, hvort sem þau eru ræktuð í garðinum eða vaxa villt í náttúrunni. Er nær dregur hausti og í byrjun vetrar þroskast fræ og með því að safna því og síðan sá er hægt að rækta sjálfur fjölda tegunda. Farið er hvenær fræið nær fullum þroska, hvernig sé best að sá fræinu og rækta. Hvernig best sé að merkja fræið, mikilvægt að skrá tegundina, dagsetningu og hvar fræin voru tínd. Sumt fræ þurfa kaldörvun til að spíra og farið er vel í hvernig hún á sér stað.
Leiðbeinandi:Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|