Fjárhagsleg heilsa - vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Hvernig tökum við réttar ákvarðanir hverju sinni og bætum fjárhaginn?
 

Með einföldum og skýrum hætti er litið á hvernig bæta má rekstur heimilisins. Rætt er um þær fjárhagslegu áskoranir sem mæta okkur í daglegu lífi, svo sem varðandi sparnað og útgjöld, uppbyggingu eigna og skuldir. Hvernig komum við okkur úr viðkvæmri stöðu og hvernig bætum við fjárhaginn með skipulögðum hætti?

Bættur árangur er ekki tilviljunum háður heldur krefst skýrra markmiða og góðrar leiðsagnar.

Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson

Hvar og hvenær: vefnámskeið 29. október klukkan 17:00-19:00

Verð: 20.900 kr

 

 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Fjárhagsleg heilsa 29. okt. Fimmtudagur 17:00-19:00 Vefnámskeið 20.900 kr. Skráning