Persónuleg fjármál

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Athugið þetta námskeið er haldið sameiginlega með stéttarfélögum á svæðinu og því verða ekki eingöngu starfsmenn HSN á námskeiðinu. 

Rætt verður um ýmsar hliðar persónulegra fjármála, frá skuldum og eignum að daglegum útgjöldum og undirbúningi fyrir kostnaðarsöm tímabil á lífsleiðinni.  

Sérstök áhersla verður lögð á færni við að haga fjármálum eftir aðstæðum hverju sinni, bregðast við breytingum og fylgjast með þróun í efnahagslífinu. Gefnar verða gagnlegar ábendingar varðandi lántöku, sparnað og uppbyggingu lífeyris svo eitthvað sé nefnt.  

Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:  

  • Hvernig næ ég bestum árangri í bæði skammtíma- og langtímasparnaði?
  • Hvernig veit ég hvaða lánsform hentar mér best?  
  • Hvaða áhrif hafa breytingar í efnahagslífinu á fjármálin mín?  
  • Hvernig get ég best varið mig fyrir verðbólgu og háum vöxtum?  
  • Get ég bætt stöðu mína á efri árum?  

Fyrir hverja er námskeiðið?  Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri sem vill ná betri tökum á fjármálum sínum.  

Ávinningur þátttakenda: Þátttakendur munu sjálfir geta gert áætlanir um heimilisfjármálin, hagað þeim eftir aðstæðum og freistað þessa að bæta fjárhagsstöðu sína. 

Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans. Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði. Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar. 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Persónuleg fjármál 09. okt Miðvikudagur 17:00-19:00 Vefnámskeið Skráning