Outlook og Teams

Flokkur: námskeið

Þetta námskeið er stytri útgáfa af tveimur námskeiðum, þ.e. "Outlook - sýnir, flýtileiðir og reglur" og "Notkun á Microsoft Teams fyrir samskipti og stjórnun verkefna".  Um það bil þriðjungi tímans er varið í Outlook og um tveimur þriðju í Teams. Eftirfarandi verður tekið fyrir:

Outlook

  • Stillingar á Innhólfi (leslista)
  • Outlook Rules
  • Quick steps
  • Að bóka fundi
  • Að skrifa skeyti

 

Teams

  • Hvað er Microsoft Teams  og tilgangur
  • Helstu einingar
  • Hvernig stofnum við teymi … og hvað gerist/verður til?
  • Hvernig veitum við aðgang?
  • Chat - spjall
  • Teams - teymi og teymisvinna
  • Meetings - fundir
  • Activity - atburðaskrá

 

Fyrirkomulag: Kennslan er í formi sýnikennslu og dæmi tekin úr raunverulegu umhverfi. 
Nemendur geta mætt með eigin fartölvu með uppsettu Outlook 2013 eða nýrra og geta fylgt eftir og æft sig samhliða. Einnig er hægt að fá lánaða vél hjá SÍMEY.

Markhópur: Þetta námskeið hentar bæði einstaklingum sem og vinnustaðahópum. Fyrir hópa er hægt að aðlaga efni að þeirra þörfum.

Leiðbeinandi: Sigvaldi Óskar Jónsson

Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja hjá ríki og sveitarfélögum athugið! 
Starfsmenntasjóðirnir Sveitamennt og Ríkismennt greiða námskeiðsgjald vegna þátttöku almennra starfsmanna sveitarfélaga og ríkisins. Þetta á einnig við stofnanir ríkis og sveitarfélaga sem eru aðilar að Sveitamennt og Ríkismennt. 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð