Nútímastjórnun og yfirsýn - vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Nútímastjórnun og yfirsýn - 3 klst VEFNÁMSKEIÐ


Leiðbeinandi: Ingvar Jónsson, Alþjóða markaðsfræðingur, MBA, PCC-markþjálfi og NBI-master trainer


Það er hægt að ná og halda yfirsýn og hafa líka tíma fyrir lífið sjálft!
Í nútímasamfélagi er hraðinn orðinn það mikill að oft er erfitt er að ná og halda yfirsýn yfir öll þau verk sem fyrir liggja. GTD nútímastjórnunarkerfið er heildstætt kerfi sem auðvelt er að tileinka sér. Viltu öðlast meiri hugarró og segja streitunni stríð á hendur? Þá er þetta námskeið sem þú ættir að skoða.


Þetta námskeið er sniðið að þörfum þeirra sem upplifa að dagurinn dugi ekki til dagsins verka. Áhersla er lögð á að horfast í augu við staðreyndir og að hver og einn finni sína eigin leið til betra skipulags.


Á námskeiðinu lærir þú:
• Að flokka og skilgreina öll þau verkefni sem kalla á athygli þína.
• Að vinna með mismunandi verklista í stað úreltra og tilgangslítilla „To-do“-lista.
• Að nota MS OneNote til að ná og halda yfirsýn yfir allt sem fyrir liggur.
• Að skipuleggja og flokka tölvupóstinn þannig að þú farir frá Inboxinu tómu í lok hvers vinnudags.
• Hvernig hæð athyglinnar getur hjálpað þér við forgangsröðun verkefna.


Verð: 29.000 kr.

*Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja  athugið, starfsmenntasjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsmenn í Einingu Iðju. 

*Aðilar að Iðunni eiga rétt á 75% niðurgreiðslu á námskeiðið og geta skráð sig á www.idan.is. 

Athugið að námskeiðið er opið öllum og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð