Notkun á Microsoft Teams fyrir samskipti og stjórnun verkefna

Flokkur: námskeið

Á þesssu þriggja tíma námskeiði verður Microsoft Teams kynnt og dæmi um notkun sýnd.
Mjög margir eru með Teams uppsett en hafa ekki alveg náð tökum á því hvernig hægt er að nota þetta vinsæla verkfæri Microsoft.

Meðal efnis verður: 

  • Hvað er Microsoft Teams  og tilgangur
  • Helstu einingar
  • Hvernig stofnum við teymi … og hvað gerist/verður til?
  • Hvernig veitum við aðgang?
  • Chat - spjall
  • Teams - teymi og teymisvinna
  • Meetings - fundir
  • Calls - samtalslisti
  • Activity - atburðaskrá
  • Apps - viðbætur

Fyrirkomulag: Kennslan er í formi sýnikennslu og dæmi tekin úr raunverulegu umhverfi. 
Nemendur geta mætt með eigin fartölvu með uppsettu Outlook 2013 eða nýrra og geta fylgt eftir og æft sig samhliða. Einnig er hægt að fá lánaða vél hjá SÍMEY.

Markhópur: Þetta námskeið hentar bæði einstaklingum sem og vinnustaðahópum. Fyrir hópa er hægt að aðlaga efni að þeirra þörfum.

Leiðbeinandi: Sigvaldi Óskar Jónsson

 

*Athugið að sjóðir stéttarfélaga greiða fyrir starfsmenn, sem eru félagsmenn í aðildarfélögum Starfsmenntar og þeim félögum sem hafa gert samstarfssamning við Starfsmennt í gegnum mannauðssjóði. Þetta á t.a.m. við um félagsmenn SFR, Kjöl og starfsmenn ríkis og sveitarfélaga í Einingu Iðju. Nánari upplýsingar um aðildarfélög Starfsmenntar má finna hér. Aðilar í Starfsmennt skrá sig hér www.smennt.is

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning