Náðu stjórn á vinnudeginum með Outlook

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Láttu ekki Outlook stjórna þér, þú átt að stjórna Outlook.

Á þessu námskeiði lærum við að nota Outlook sem tímastjórnunartæki. 

Við skoðum hvernig pósta við eigum EKKI að senda frá vinnunetfangi og hvaða hlutverki Outlook gegnir í vinnunni. Við lærum hagnýtar leiðir í Outlook sem eru hannaðar til að hjálpa okkur að ná stjórn á vinnudeginum. Við lærum hvaða stillingum við getum breytt í Outlook til þess að taka stjórnina í okkar hendur.  Við skoðum hvernig Outlook tala við önnur forrit eins og t.d OneNote og Teams og hvernig við nýtum þau með Outlook. 

Fyrir hverja? 

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja læra hvernig Outlook getur hjálpað okkur að ná stjórn á vinnudeginum 

Leiðbeinandi: Hermann Jónsson, Microsoft sérfræðingur 

 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning