Málmsuðusmiðja - MMA suða (Rafsuða)

Flokkur: Lengra nám

Námskeiðið er fullt. Verið er að skrá á biðlista!

Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrarformi og verklegri vinnu en auk þessa þurfa þátttakendur að halda verkdagbók á meðan á námskeiði stendur. Miðað er við að fagbókleg kennsla nemi að lágmarki 13 klukkustundum af 80 klukkustunda heildarnámstíma námsins.

Athugið að námið er ætlað einstaklingum sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi. 

Forkröfur náms: Ætlað fólki sem er 18 ára og eldra.
Lengd: 80 klst.
Námsmat: Gerð er krafa um 80% lágmarksmætingu.
Kennarar: Kristján Þ. Kristinsson og Stefán Finnbogason
Hvar: Verkmenntaskólinn á Akureyri
Hvenær: Hefst 1. febrúar.  Kennt mánudaga kl 16:30-20:30, föstudaga kl 15:00-19:00 og laugardaga kl 9:00-13:00.
Verð: 34.000 kr

p.s. Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!