Lífeyrismál á öllum aldri

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Ítarlegt námskeið þar sem rætt verður um lífeyrismál og fjármál á efri árum með sérstakri áherslu á  hvað yngra fólk getur gert í dag til að bæta stöðu sína síðar á lífsleiðinni.  

 Meðal þess sem um verður rætt er: 

  •  Hvernig við getum bætt fjárhag okkar síðar á ævinni til muna 

  •  Hvernig möguleg samsetning tekna getur verið 

  •  Greiðsla lífeyris og hvenær best er að sækja um hjá lífeyrissjóðum 

  •  Hlutverk viðbótarlífeyris og annarar séreignar 

  •  Möguleiki á hlutastarfi og töku hálfs lífeyris 

  •  Greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar 

  •  Fjárhagslegt öryggi maka og barna 

  •  Eignir og skuldir 

Fyrir hverja: Námskeiðið hentar öllum sem ekki hafa þegar sótt um lífeyri, ekki síst þeim sem eru yngri en 60 ára. Því yngri sem þátttakendur eru, því meira geta þeir tileinkað sér í dag til að bæta úr fjárhagslegri stöðu sinni á lífeyrisaldri. Engin þekking á málaflokknum er nauðsynleg. 

Ávinningur: Afar mikill fjárhagslegur ávinningur getur fólgist í því að undirbúa fjármál á lífeyrisaldri snemma. Með góðum undirbúningi má klæðskerasníða starfslokin með þeim hætti að við njótum fjármuna okkar sem best og lágmörkum líkur á mistökum. 

Hvar og hvenær: 19. mars- vefnámskeið 17:00-19:00 

Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans. Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði.  Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar. 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning