Lasernámskeið framhald - FABLAB

Flokkur: námskeið

Á þessu framhaldsnámskeiði í notkun á Inkscape og laserskurðarvél verður farið yfir forritið Inkscape og flóknari hönnunarmöguleika.

Fyrir þetta námskeið er ætlast til að nemandi sé með reynslu í notkun á laserskurðvél.  

Laserskurðar vélarnar sem Fab Lab Akureyri er með eru Epilog Helix Laser 60 og 40w vélar sem geta skorið í gegnum allt að 9mm þykk efni (timbur, plexigler o.fl). Einnig er hægt að merkja í sterkari efni (gler og stein).  

Nemendur teikna upp sinn eigin símastand frá grunni, laserskera hann og fá að eiga hann að loknu námskeiði.  

Leiðbeinandi: Jón Þór Sigurðsson forstöðumaður FABLAB Akureyri 

Tími: 6 tímar, tvö skipti, 18. & 20. mars frá 17:00 - 20:00 

Undanfari: Lasernámskeið - Grunnur  

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð