Jólakort með Vaiva – Studio Vast
Gefðu jólakortinu þínu persónulegt og handgert yfirbragð á vinnustofu Vaivu hjá Studio Vast.
Vaiva hefur hannað fjölda tækifæriskorta sem hafa lukkast mjög vel sem þú getur fundið í verslunum um land allt.
Á námskeiðinu fær þú innsýn inn í hönnun korta, skoða ýmsar útfærslu leiðir og prófa að skapa einstök jólakort fyrir þá sem þér þykir vænt um.
Á staðnum verðum allskonar blönduð tækni eins og litir, pennar, vatnslitir og folíur. Einnig færð þú tækifæri til að prófa að skrautrita með brush penna á kortin.
Skemmtileg samverustund sem þú munt elska.
Kennari: Vaiva Straukaite eigandi studio Vast
Verð: 22.900
Tímasetning: 17.nóvember kl 18:00 - 20:30
Staðsetning: SIMEY Þórsstíg 4
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Jólakort með Vaiva | 17. nóv. | þriðjudagur | 18:00-20:30 | SIMEY Þórsstíg 4 | 22.900 kr. | Skráning |