Hlaðvarpsskóli PSA - í samstarfi við SÍMEY

Flokkur: námskeið

Námskeiðið er ætlað fólki sem hefur áhuga á að kynna sér gerð hlaðvarpa og taka fyrstu skrefin.   

  1. Hluti - Viðskiptahlið og saga - Halldór Kristinn Harðarson
    Fjallað um sögu hlaðvarpa, hlaðvörp á íslandi og erlendis, hvað kostar að byrja hlaðvarp, kostnaðarliðir, hvernig á að sækja sponsa og selja þáttinn sinn, hvernig hleður þú þættinum þínum upp og skilgreining á því hvernig hlaðvarpið þitt er og hvað það er hægt að nota það í.  

  1. Hluti -  Framkoma og sjálfstraust – Ásgeir Ólafsson
    Farið yfir hvernig þú talar í hlaðvarpi og beitir þér. Hvernig þú talar við fólk almennt í lífinu og í viðskiptum. Fjallar um hvað þarf til þess að búa til vinsælan og skemmtilegan þátt sama hvað viðfangsefnið er auk þess að fara yfir almenna þekkingu á tónllist og markað í kringum tónlist.  

  1. Hluti - Hljóð og tæknimál - Halldór Kristinn Harðarson
    Farið yfir hvað þarf til að taka upp hlaðvarp, muninn á gæðum í hljóði og muninn á græjum sem þarf til að taka upp. Útskýrt hvernig hljóðnemar virka og af hverju ásamt því að fara yfir hvernig hægt er að láta þáttinn hljóma vel og hvað það skiptir miklu máli.  

  1. Hluti – Upptaka í Podcast stúdíói Akureyrar 
    Hópurinn fer í stúdíó í hollum, mest 4-5 manns í einu. Hver og einn fær kynningu og jafnframt að prófa upptöku í stúdíói.  

Í framhaldi af námskeiðinu mun Podcast stúdíó Akureyra bjóða þátttakendum upp á afslátt af notkun á stúdíóinu til þáttagerðar. 

Leiðbeinendur:  

  • Halldór Kristinn Harðarson, eigandi Podcaststúdíós Akureyrar og podcastari 

  • Ásgeir Ólafsson, fyrrum útvarpsmaður,  podcastari og markþjálfi 

Fyrirkomulag: Dagana 20. og 22. september er staðkennt frá kl. 16.30-19.30 í SÍMEY. Í vikunni á eftir fá þátttakendur í minni hópum 2 klst verklega kennslu í Podcast stúdíói Akureyrar.  

 

Við minnum þátttakendur á að kanna möguleika á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð