Námið skiptist í 4 námsþætti og er ætlað að ná utan um grunnþætti forritunar í hönnun og
forritun, rökhugsun, sköpun, þrautalausnir og kynna helstu forritunarmálin. Markmiðið
er að efla skilning og hæfni einstaklinga á grunnþáttum forritunar, þekkingu á uppbyggingu forrita, notkun hugtaka forritunar og að tengja saman forritunartungumál og hugtök forritunar. Þátttkendur læra hvernig hægt er að koma hugmyndum sínum í framkvæmd með hugmyndafræði forritunar, lögð er áhersla á öguð og viðurkennd vinnubrögð við greiningu og hönnun tölvuforrita. Að loknu grunnnámi í forritun hafa einstaklingar fengið þjálfun í að búa til forrit, teymisvinnu, sjálfstæðum vinnubrögðum og greinandi hugsun í forritunarumhverfi.
Heildarlengd námsins er 80 klukkustundir með leiðbeinanda.
Námsþættir:
ATH: námsgjöld verða innheimt í byrjun janúar 2027.
(með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs)
Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum og fræðslusjóðum!
Ertu óviss um hvort námið henti þér? Náms- og starfsráðgjöf SÍMEY stendur öllum til boða og er alltaf gjaldfrjáls. Nánari upplýsingar veita umsjónarmenn námsins, Helena (helena@simey.is) eða Andrea (andrea@simey.is).

Námskráin í heild: https://frae.is/wp-content/uploads/2022/10/NAMSKRA-Yfirlitstafla_Framvegis-1-9-2022.pdf
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út.
Frestur til úrsagnar úr lengri námsleiðum er 14 dagar frá skráningu. Sjá greiðsluskilmála.
Smellið hér til að skrá ykkur úr námi.

Markhópur símenntunarmiðstöðva eru einstaklingar sem hafa litla formlega skólagöngu að baki, þ.e. hafa ekki lokið stúdentsprófi, iðnnámi eða sambærilegu námi. Einnig einstaklingar sem hafa lokið námi erlendis, sem ekki er viðurkennt á Íslandi. Þessir einstaklingar hafa forgang í námið en öllum er velkomið að sækja um.