Fjármál við starfslok

Flokkur: HSN

Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:

  • Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
  • Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?
  • Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar? - Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
  • Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
  • Hvaða skatta kem ég til með að greiða?

Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar einkum fólki sem komið er yfir sextugt og vill bæta þekkingu sína á lífeyrismálum sem og þeim sem aðstoða nákomna lífeyrisþega.

Ávinningur þátttakenda: Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.

Leiðbeinandi: Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu af ráðgjöf og fyrirlestrahaldi um fjármál. Hann starfaði lengi sem ráðgjafi á verðbréfa- og lífeyrissviði Íslandsbanka, var fræðslustjóri bankans í yfir áratug og stýrði greiningardeild hans. Hann hefur BS próf í viðskiptafræði, próf í verðbréfaviðskiptum og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði. Björn er reglulegur álitsgjafi um fjármál í fjölmiðlum, pistlahöfundur og er höfundur bókarinnar Peningar.

Hvar og hvenær: vefnámskeið 25. mars kl 17:00-19:00

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Fjármál við starfslok 25. mar. miðvikudagur 17:00-19:00 vefnámskeið Skráning