Farþegaflutningar

Flokkur: Endurmenntun atvinnubílstjóra

Farið er yfir ábyrgðarhlutverk bílstjóra með réttindi til að stjórna bifreið í D1- og D-flokki í atvinnuskyni í farþegaflutningum sem og þjónustuþáttinn í starfi hans. Fjallað er um reglur um farþegaflutninga, s.s. leyfisveitingar og mikilvægi öryggis og aðbúnaðar farþega.
Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum sem hafa fengið réttindi sín fyrir 10. september 2013. Einnig þeim sem vilja endurnýja ökuskírteinið sitt með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni. Námsmarkmið: Markmiðið er að bílstjórinn þekki atriði er lúta sérstaklega að akstri hópbifreiða, farþegaflutningum, ábyrgð bílstjóra á öryggi farþega og almennt að þjónustuhlutverki bílstjóra, náttúruvernd, ferðamennsku, mjúkum akstri o.fl. Hann þekki ákvæði í lögum og reglum um flutning farþega og sérbúnað hópbifreiða.

Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig hér á síðunni. Þeir sem ekki eru skráðir þurfa mögulega frá að hverfa.

Verð: 20.000 kr
Athugið að ef öll 5 námskeiðin eru tekin hjá Ekli/SÍMEY er einungis greitt fyrir fjögur.

Hér getur þú kannað stöðu þína í endurmenntun.
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning