Eldhúsið hjarta heimilisins

Flokkur: vefnámskeid

Dreymir þig um að gera eldhúsið að þínu með einföldum breytingum? Aðstaða og vinnuskipulag skipta öllu máli þar sem við eyðum góðum hluta úr deginum í eldhúsinu. Innréttingar og fyrirkomulag á að auðvelda þér verkin og ýta undir sköpunarkraftinn til þess að þú getir töfrað fram frábærar máltíðir og góðar minningar. 

Á námskeiðinu verður farið yfir skipulag og fyrirkomulag eldhússins og hvaða þætti þarf að hafa í huga þegar farið er í stórar eða smáar framkvæmdir. Þetta er námskeið fyrir þá sem vilja gera einfaldar breytingar en stórar útlitslega sem og þá sem vilja gjörbreyta eldhúsinu og ætla í viðamiklar aðgerðir. 
 
Farið verður yfir grunnþætti hönnunar og skoðað hvað þarf að hafa í huga til að aðstæður henti öllum þeim verkefnum sem til falla í eldhúsinu, hvort sem það eru stórveislur, mánudagspastað, vinna við eldhúsborðið eða huggulegheit o.fl. Gæta þarf að mörgu, svo sem lýsingu, góðri loftun og góðu skipulagi. 

Á námskeiðinu er fjallað um: 

  • Góða vinnuaðstöðu. 

  • Hvað þarf fyrir gott skipulag. 

  • Mismunandi lýsingu við hin ýmsu verkefni. 

  • Hvað litir geta gert fyrir rýmið. 

  • Stemmingu og val á húsgögnum. 

  • Loftun, því eldhúsið krefst góðrar loftunar. 

Ávinningur þinn:

  • Þú færð góða yfirsýn yfir hvernig eigi að bera sig að við smáar eða stórar breytingar á eldhúsi. 

  • Hver er þinn smekkur og hvernig stemmingu viltu fanga? 

  • Þarfagreining á eldhúsinu. 

  • Þú öðlast betri skilning á því hvað þarf til að bæta aðstöðuna í eldhúsinu. 

Leiðbeinandi: Emilía Borgþórsdóttir er iðnhönnuður. Hún starfaði í Bandaríkjunum við húsgagnahönnun og innanhússhönnun í nokkur ár þar til hún flutti heim til Íslands. Emilía starfar nú sem sjálfstæður hönnuður við fjölbreytt verkefni. 

Athugið að félagsmenn í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð