Dyravarðanámskeið - í samvinnu við Einingu Iðju og lögregluna á Norðurlandi eystra

Flokkur: námskeið

Hvenær:  Dagana 7., 8., 9. og 14., 15., og 16. apríl

Lágmarksaldur:  20 ár

Skilyrði til þátttöku á námskeiðinu: Enginn getur gengt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykkir og þurfa þátttakendur að hafa hreint sakavottorð.

Þar sem námskeiðið og allt námsefni er á íslensku þurfa þátttakendur að hafa færni að lágmarki á stigi A2 skv. Evrópska tungumálarammanum.
Hægt er að taka hæfnimat hér.   

Umsókn um þátttöku: Fylla þarf út umsókn til lögreglunnar á NE um þátttöku í námskeiðinu  og skila til SÍMEY, Þórsstíg 4.
Nauðsynlegt er að skila passamynd með umsókn. 
Auk þess þarf að skrá sig með skráningarhnappi hér fyrir neðan.  

Aðilar sem eiga eftir að klára hluta námskeiðs þurfa að skila inn nýrri umsókn.  

Skráningarfrestur er til og með 23. mars. 

Athugið að námskeiðið er opið öllum og hvetjum við alla til að kanna rétt sinn á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi.

Félagsmenn Einingar- Iðju geta átt rétt á allt að 90% endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá starfsmenntasjóðum
Hægt er að hafa samband við Eining-Iðju og kanna sinn rétt.

 

 Dagskrá námskeiðsins:

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Dyravarðarnámskeið 07. apr. - 16. apr. þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur 18:00-22:00 SÍMEY 72.000 kr. Skráning