Blómstrandi líf - Vefnámskeið

Flokkur: námskeið

Á þessu námskeiði verður farið yfir mismunandi hamingjuskilgreiningar jákvæðrar sálfræði, og hvernig hugtakið blómstrun (e. flourish) nær að halda utan um þó nokkrar þeirrar.  Farið verður yfir þá þætti sem stuðla að því að við blómstrum í lífi og starfi.  Sérstaklega verður fjallað um jákvæðar hugsanir, fulla athygli og virkni í því sem við tökum okkur fyrir hendur, félagsleg tengsl og samskipti, tilgang, árangur og markmiðasetningu. 

Leiðbeinandi:  Haukur Pálmason er tónlistarmaður, kennari og tölvunarfræðingur sem jafnframt hefur lokið diploma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ. 

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. 

Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.

Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  

Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) 

Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð