Betri svefn og vaktavinna
Flokkur: HSN
Fræðsla um svefn og svefnráð
Í þessum fyrirlestri er farið yfir mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu. Meðal annars er fjallað um eftirfarandi atriði:
- Hversu mikið þurfum við að sofa og hvaða áhrif hefur of lítill svefn?
- Uppbygging svefns, svefnstig og hlutverk þeirra.
- Hvað hefur áhrif á svefn og svefngæði?
- Hvernig virkar líkamsklukkan? Hvenær er hugræn færni eins og athygli og árvekni í hámarki og hvenær er vöðvastyrkur í hámarki? Hvernær er t.d. best að sinna hugrænt krefjandi verkefnum í vinnunni?
- Áhrif svefns og svefnleysis á andlega og líkamlega heilsu.
- Hvaða úrræði er til við svefnleysi og hvert leita ég?
- Vaktavinna og svefn
- Hagnýt ráð fyrir vaktavinnufólk
- Hvað getum við sjálf gert til að tryggja góðan nætursvefn? Góð svefnráð rædd.
Hvar og hvenær: Fyrirlestur á netinu – 11. Febrúar 14:30-15:30
Kennari: Erla Björnsdóttir
|
Heiti námskeiðs
|
Dags
|
Dagar
|
Tími
|
Staðsetning
|
Verð
|
Skráning
|
|
Betri svefn og vaktavinna |
11. feb. |
Miðvikudagur |
14:30-15:30 |
Vefnámskeið |
|
Skráning
|