Betri skilningur og bætt samskipti

Flokkur: vefnámskeid

Nú er hægt að fara í gegnum námskeiðið Betri skilningur og bætt samskipti á vefnum og einstaklingsmiðað 

Þarfir einstaklinga eru mismunandi þegar kemur að samskiptum. Oft er það þannig að við komum fram við fólk á þann hátt sem við viljum að sé komið fram við okkur sjálf, sem er gott og gilt. En hvað ef þú gætir komið fram við fólk eins og það vill að sé komið fram við sig?

Everything DiSC® er byggt á rannsóknarvinnu William Moulton Marston Ph.D. (1893-1947) sem greindi fólk niður í fjórar manngerðir:

  • D fyrir Dominance
  • i fyrir Influence
  • S fyrir Steadiness
  • C fyrir Conscientiousness

Þátttakendur á námskeiðinu munu taka Everything DiSC Workplace könnun á netinu áður en þeir mæta í fyrsta tímann, könnunin er á ensku. Úr könnuninni er síðan unnin skýrsla, sem er einstaklingsbundin, sem skilgreinir hvaða persónueiginleikar eru sterkir hjá þátttakandanum og hvernig hægt er að nýta þá frekar. Skýrslan gefur þátttakendum einnig innsýn í hvernig þeir geta nýta sína eiginleika í samskiptum við aðra.

Námskeiðið byggist upp á tveimur klukkustunda löngum viðtölum. Fyrri tíminn er nýttur í að skoða hugmyndafærðina og farið yfir fyrri part skýrslunnar.  Seinni tíminn, þá er skýrslan kláruð og þátttakendur setja sér markmið varðandi hvernig þeir munu nýta sér námskeiðið í framhaldi.

Könnunin og skýrslan eru á ensku.

Um 40 milljónir manns hafa fengið DiSC þjálfun í gegnum tíðina í heiminum.

Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja auka skilning og áhrif sín í samskiptum. Samskipti eru einn mikilvægasti þátturinn sem vinnustaðir munu krefjast í kjölfar meiri tæknivæðingar.

Fyrirkomulag: Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrarformi og viðtölum.

 

Þegar þú hefur skráð þig á námskeiðið munt þú fá póst frá námskeiðshaldara með frekari upplýsingum.

 

Lengd: 3 klst.

Verð: 26.700kr

Leiðbeinandi: Kjartan Sigurðsson, eini vottaði DiSC þjálfarinn frá Wiley á Íslandi. Starfaði við þjálfun einstaklinga í Everything DiSC í Bandaríkjunum og hefur unnið með fyrirtækjum á Íslandi við að greina og þjálfa starfsfólk þess.

 

Ef það eru einhverjar spurningar endilega hafðu samband í gegnum kjartan(hjá)simey.is

 

*Félagsmenn í stéttarfélaginu Eining Iðja - starfsmenntasjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir félagsmenn í Einingu Iðju. 

Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning