Ertu með Airfryer heima sem er bara notaður í franskar? Eða ertu að íhuga að fá þér tæki en veist ekki hvar á að byrja? Airfryer er ekki bara „panna“ – þetta er öflugasti bandamaðurinn þinn í eldhúsinu þegar tíminn er naumur en kröfurnar miklar.
Á þessu námskeiði sýnum við þér hvernig þú breytir þessu tæki í þinn helsta matreiðslumeistara.
Hverjum hentar námskeiðið?
Leiðbeinandi: Ásta Búadóttir, kennari og matreiðslumeistari
Verð: 23.900.-
Hvenær: 3. mars kl 17:00-20:00 í SÍMEY, Þórsstíg 4.
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Airfryer töfrar: Hraðar, hollara og hreinlega betra ! | 03. mar. | þriðjudagur | 17:00-20:00 | SÍMEY, Þórsstíg 4 | 23.900 kr. | Skráning |