Aðlögun sveitarfélaga að loftlagsbreytingum - Fyrirlestur og spjall

Flokkur: Loftum

Eingöngu ætlað kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. 

Á fyrirlestrinum munu sérfræðingar Veðurstofu Íslands kynna glóðvolgar niðurstöður vísindanefndar um loftslagsbreytingar hvað varðar umfang og áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi, hvaða leiðir sveitarfélög og aðrir sem koma að stefnumótun til framtíðar geti búið sig undir breyttan heim.

Ljóst er að loftslagsbreytingar eru byrjaðar að breyta náttúrufari og lífsskilyrðum fólks á Íslandi með vaxandi áskorunum fyrir efnahag, samfélag og náttúru. Veðurfar og náttúruaðstæður á landinu, og í hafinu umhverfis það, verða í lok aldarinnar án fordæma frá upphafi byggðar á Íslandi. 

Samfélög eru ekki aðeins berskjölduð gagnvart beinni loftslagsvá svo sem skriðuföllum, flóðum og þurrkum heldur einnig óbeinni vá sem getur meðal annars haft áhrif á aðfangakeðjur og fæðuöryggi, samfélag og heilbrigðiskerfi.  

Mikilvægt er að þeir sem vinna að skipulagi og stefnumótun hafi greinargóðar upplýsingar, þekkingu og viðeigandi tæki og tól til þess að taka ákvarðanir með breytta framtíð í huga.

Fyrirlestur mun taka um 40 mínútur og í lokin verður opið fyrir spurningar og samtal um málefnið. 

Markhópur: Kjörnir fulltrúar sveitarfélaga, yfirstjórn og starfsfólk í veitum og umhverfis- og skipulagsmálum sveitarfélaga. 
Tímasetning: ZOOM - 24. apríl frá kl 13:00 - 14:00 

Leiðbeinendur:  Anna Hulda Ólafsdóttir og Theódóra Matthíasdóttir sérfræðingar hjá Veðurstofu Íslands

Frekari upplýsingar varðandi LOFTUM námskeið veita: 

Kristín Björk – 460-5724 – kristin@simey.is 
Ingunn Helga – 460-5727 – ingunn@simey.is 
Hilmar Valur – 464-5100 – hilmar@hac.is 

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning