Að setja mörk í lífi og starfi

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) 

Í lífi og starfi er mikilvægt að kunna að setja mörk af ábyrgð, vinsemd og festu. Við gegnum mörgum hlutverkum og þess vegna er gott að skilja á milli, til dæmis sem starfsmenn, vinnufélagar, stjórnendur, kunningjar, ættingjar, vinir, foreldrar, makar, aðstandendur og einstaklingar með fjölskyldu og frítíma, en ekki síst sem mannlegar verur sem þurfa að hlúa að sjálfum sér. Farið er í mikilvægi þess að þekkja sínar eigin tilhneigingar og vita hvaða mörk þarf helst að styrkja, til að geta byrjað að æfa sig í að setja skýr og mannleg mörk.

  • Hvenær er líklegast að það reyni á mörkin?
  • Er það í ákveðnum aðstæðum?
  • Eru ákveðnir einstaklingar sem taka af okkur stjórnina, orðið eða skipulagið?

Gefin eru ráð í samskiptum, til dæmis varðandi það að hafa áhrif á tímasetningar, stað og stund, aðstöðu og andrými til að sinna erindum og tækifæri til persónulegrar hvíldar. Lögð er áhersla á að láta ekki stýrast af óskipulagi annarra og mikilvægi þess að geta sagt “nei” á skýran og vinsamlegan hátt. 
Athugið að hægt er að velja um tvo hópa. 
Tímasetningar:  

Hópur 1: Mánudagana 16. og 23. janúar kl 14.30-16.30  FULLT!

Hópur 2: Fimmtudagana 27. apríl og 4. maí kl 14.00-16.00 

Leiðbeinandi: Steinunn Inga Stefánsdóttir, frá Starfsleikni.

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning