Að semja um hærri laun
Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði í samningatækni, með áherslu á það hvernig hægt er að ná meiri árangri í samningaviðræðum um betri kjör. Á námskeiðinu lærir þú: Grunnatriði í samningatækni, að undirbúa þig fyrir launaviðræður og aðferðir til þess að semja um hærri kjör. Námskeið fyrir alla sem vilja verða betri í að semja.
Leiðbeinandi: Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Verð: 19.900
Dagsetning: 17. Nóvember kl. 17:00-18:30
Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.
Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst. Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
| Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Að semja um hærri laun | 17. nóv. | Þriðjudagur | 17:00-18:30 | Vefnánskeið | 19.900 kr. | Skráning |