Grunnnámskeið í útivist og fjallgöngum

Flokkur: námskeið

Farskólinn og SÍMEY, í samstarfi við Fjallafjör, bjóða upp á grunnnámskeið í útivist og fjallgöngum.  Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar kemur að almennri útivist og fjallgöngum s.s. undirbúningi ferða, búnaði, öryggi, næringu, þjálfun, leiðarvali, skóreimingar svo eitthvað sé nefnt.  Námskeiðið er í senn bóklegt og verklegt og Fjallabókin eftir Jón Gauta Jónsson er innifalin í verði námskeiðsins. Farið verður í göngu báða dagana ef veður leyfir og þarf fólk því að koma búið til göngu. 

Leiðbeinandi: Guðmundur Örn Sverrisson. Guðmundur starfar sem framkvæmdastjóri Hugsjónar ehf. sem á og rekur Fjallafjör, var fararstjóri hjá Ferðafélaginu Útivist á árunum 2013-2021 og skálavörður á árunum 2011-2012. Hann hefur meðal annars lokið reglubundnum námskeiðum í skyndihjálp í óbyggðum, rötun, vetrarfjallamennsku, undirbúningsnámskeiði í jöklaleiðsögn, jöklaleiðsögn 1 hjá AIMG, hópstjórn og komið að þjálfun fjölmargra fararstjóra.

Hvar og hvenær:  Námskeiðið verður haldið í Skagafirði helgina 27 og 28.apríl 9:00-17:00 hvorn dag.

Lengd: 16.klst

Athugið að aðilar í stéttarfélögunum Eining Iðja, Kjölur og Sameyki ásamt stéttarfélögum sem eru aðilar að Iðunni sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðila í öðrum stéttarfélögum að kanna rétt sinn hjá sínu félagi.

Vinsamlega athugið að námsgjöld eru óafturkræf eftir að frestur til að segja sig frá námi rennur út. Berist umsókn til okkar innan tveggja sólarhringa áður en námskeið hefst verður námskeiðsgjaldið gjaldfært strax og námsgjöld þar af leiðandi óafturkræf.Frestur til úrsagnar úr námskeiðinu er allt að 48 klukkustundum áður en námskeiðið hefst.  Hafi skrifleg úrsögn ekki borist fyrir þann tíma, verða námsgjöld innheimt að fullu (sjá greiðsluskilmála SÍMEY) Ef þú vilt hætta við umsókn og koma í veg fyrir að námsgjöld verði innheimt, smelltu þá hér áður en fresturinn rennur út, fylltu út formið og sendu til okkar.
Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning