MA-nemar gefa íslensku séns í SÍMEY

Nemendur Braga V. Bergmann í íslensku sem öðru máli og nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri áttu sk…
Nemendur Braga V. Bergmann í íslensku sem öðru máli og nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri áttu skemmtilegar samræður í SÍMEY í gær.

SÍMEY leitast stöðugt við að auka þjónustu við nemendur af erlendum uppruna. Í gær var haldinn viðburður undir formerkjum Gefum íslensku séns, sem er hugmyndafræði sem upphaflega má rekja til Háskólaseturs Vestfjarða.

Ákveðið var að bjóða upp á hraðíslensku og komu í heimsókn fimmtán nemendur Eyrúnar Huldar Haraldsdóttur í íslensku í Menntaskólanum á Akureyri og áttu samtöl við íslenskunemendur í SÍMEY.

Markmiðið er þjálfun í töluðu máli og er lögð áhersla á að gefa íslenskunni séns, svo vísað sé til þessa átaks, þ.e. að tala íslensku við þá sem vilja læra íslensku en ekki skipta yfir í ensku ef fólk skilur ekki merkingu orða í fyrstu tilraun. Lykilatriðið er að tala hægt og skýrt og endurtaka orð og setningar ef fólk af erlendum uppruna skilur ekki í fyrstu atrennu. Eða svo vitnað sé til orða Kristínar Bjarkar Gunnarsdóttur verkefnastjóra í SÍMEY: Við viljum ná til sem flestra og leiða fólki fyrir sjónir að allir geta lagt sitt af mörkum við að hjálpa fólki að læra málið. Það þarf ekki próf í íslenskum fræðum til þess.

Heimsókn MA-nemanna, sem allir eru á þriðja ári í skólanum, í SÍMEY í gær, sem kalla má verkefni í hraðíslensku, tókst afar vel. Þeir skiptust á að ræða við íslenskunemendur og fengu þannig innsýn í líf þeirra og jafnframt spunnust skemmtilegar samræður. MA-krakkarnir sögðust hafa haft mikla ánægju af þátttöku í þessu verkefni og það sama má segja um íslenskunemendur sem tilheyra hópi hjá Braga V. Bergmann. Þá töluðu MA nemendur um að þessi samvera hefði vakið þau til meðvitundar um hversu oft þau tala einmitt ensku við innflytjendur og töldu það vera kurteisi en nú hafi þau meiri skilning á að það sé ekki endilega málið, það væri einmitt meiri kurteisi að tala íslensku og sýna þolinmæði.

Okkur Íslendingum hættir allt of oft til að skipta yfir í ensku ef viðmælendur af erlendum uppruna skilja ekki íslenskuna. En það er ekki það sem bróðurpartur innflytjenda vill. Þeir vilja læra íslenskuna og lykilatriði er að veita þeim allan þann stuðning sem unnt er til þess.

Þessi samverustund í hraðíslensku í gær tókst afar vel og markar upphafið á átaki eða öllu heldur vitundarvakningu í SÍMEY undir formerkjum Gefum íslensku séns. Kristín Björk segir að í framhaldinu verði leitað til fólks á öllum aldri til þess að koma og ræða við nemendur og styðja þá í íslenskunáminu.

Markmið okkar er jafnframt að vinna að því að samfélagið í kringum okkur verði íslenskuvænt og við höfum þegar sett okkur í samband við aðrar menntastofnanir innan SSNE og bókasöfnin á svæðinu og viljum gjarnan kynna hugmyndafræðina í sem flestum fyrirtækjum líka. Best er ef við getum unnið þetta saman, deilt hugmyndum og góðum ráðum, segir Kristín Björk og hvetur alla áhugasama um að hafa samband og leita frekari upplýsinga.