Þetta námskeið er ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Hér er um að ræða 40 klst nám sem byggt er á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.
Markmið: Er að auka færni þátttakenda í að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í daglegu lífi. Fjallað verður um þunglyndi og kvíða, markmiðasetningu, breytta hugsun, sjálfsmat og sjálfseflingu og bakslagsvarnir.
Námið samanstendur af fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu bæði í kennslustundum og utan þeirra.
Leiðbeinandi: Líney Úlfarsdóttir Sálfræðingur hjá HSN.
Hvar og hvenær: Námið verður kennt á netinu í gegnum Zoom. Kennt verður tvö kvöld í viku þriðjudaga og fimmtudaga 18:00-20:00
Lengd: Námið er samtals 40 klukkustundir að lengd og þar af 24 klukkustundir með leiðbeinanda.
Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|