Mikilvægi hreinlætis við meðhöndlun matvæla - frá eldhúsi til framreiðslu á hjúkrunarheimilum

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Á námskeiðinu er fjallað um mikilvægi hreinlætis við meðhöndlun matvæla frá framleiðanda til framreiðslu, hitastigsmælingar, þrif og hreinlæti starfsfólks.  Sérstaklega er hugað að meðhöndlun matvæla fyrir viðkvæma hópa s.s. sjúklinga og eldra fólks sem býr á hjúkrunarheimilum.   

Fjallað verður um mikilvægi þess að kælikeðjan haldist órofin, að heitur matur sé heitur og upphitun sé nægileg til að hindra örveruvöxt sem getur valdið veikindum hjá neytendum. 

Áhersla er lögð á hvað bera að hafa í huga þegar matur er fluttur frá eldhúsi á deildir og framreiðslu á deildum til íbúa á hjúkrunarheimilum. 

Leiðbeinandi: Marína Sigurgeirsdóttir 

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:

Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning
Hreinlætis við meðhöndlun matvæla 14. maí Þriðjudagur 14:00-16:00 Fjallabyggð Skráning